Útgáfa
Safnið hefur staðið að útgáfu nokkurra bóka. Þar ber helst að nefna verk eftir Bjarna Guðmundsson, fyrrv. safnstjóra safnsins, sem hóf í sínum störfum fyrir safnið og Landbúnaðarháskóla Íslands, rannsóknir á eldri landbúnaðarháttum, vélvæðingu, sögu Mjólkurskólans svo eitthvað sé nefnt.
Hér á eftir eru titlar þeirra bóka og greina sem safnið hefur staðið að baki að einhverju leyti.
Anna Heiða Baldursdóttir
„Hin mörgu hlutverk kvenna í búskap: Hlutur Borgfirskra kvenna í landbúnaði síðustu 100 árin“. Borgfirðingabók 2019. 56–75. Akranes: Sögufélag Borgarfjarðar, 2019.
Bjarni Guðmundsson
Skoða ISUU útgáfu Bjarna Guðmundssonar
Íslenskir slátturhættir. Reykjavík: Opna. Hið íslenska bókmenntafélag, 2015.
Íslenskir heyskaparhættir. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, Opna, 2018.
Yrkja vildi ég jörð: Íslenskir jarðræktarhættir. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 2020.
Búverk og breyttir tímar. Selfoss: Sæmundur, 2024.
