Heim » Fyrir gesti
Leiðbeiningar fyrir gesti safnsins
  • Bakpokar eru ekki leyfðir á safninu.
  • Það er leyfilegt að taka ljósmyndir – án flass.
  • Ekki er leyfilegt að fara í vélar eða bíla.
  • Börn eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna.
  • Hjólastólaaðgengi er á jarðhæð safnsins.
Opnunartími

16. september–14. maí er safnið opið kl. 13 – 17, á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum. Á sama tíma og Ullarselið, sem er í anddyri safnsins, opið.

Opið er á sumrin alla daga frá kl. 11–17. Á öðrum tímum er safnið opið eftir samkomulagi.

Hægt er að bóka hópa (10+) utan auglýsts opnunartíma.

Vinsamlega bókið hópa í safnið með a.m.k. dags fyrirvara.

Nánari upplýsingar: ragnhildur@landbunadarsafn.is eða í síma 437 0070

Aðgangseyrir

Fullorðnir (15+) 1400 kr. (og í hópum sem sérstök leiðsögn er veitt).

Börn (0–14 ára) Frítt (í fylgd fullorðinni).

Námsmenn 1100 kr.

Eldri borgarar 1100 kr.

Öryrkjar 1100 kr.

Bóka leiðsögn

Í boði er að bóka leiðsögn fyrir hópa á Landbúnaðarsafnið. Einnig er í boði að bæta við stuttri kynningu á Hvanneyrarstað og starfinu þar m.a. með heimsókn í Hvanneyrarkirkju og örstuttri gönguferð um Gamla skólastaðinn (ef veður leyfir).

Æskilegt er að panta slíka kynningu með góðum fyrirvara. Jafnframt er vakin athygli á að Ullarselið er opið á sama tíma og leiðsögn fer fram en það er ein af fremstu handverksbúðum landsins. Bóka þarf hópa með a.m.k. dags fyrirvara.

Nánari upplýsingar ragnhildur@landbunadarsafn.is eða í síma 437 0070